Færsla Nr. 2.

Jæja fyrst maður er nú byrjaður á þessu þá er eins gott að halda áfram. Búinn að gera ferlega takmarkað síðan síðasta færsla var rituð. Júmm fór á eitt fyllerí, sem var svona frekar sullerí en almennt fyllerí. Semsagt þegar ég kom í bæinn eftir að hafa verið í prófi fyrr um daginn fannst mér það þræl sneddý hugmynd að fara og drekka svona almennilega.

Byrjaði uppúr 16 og klukkan 20 þá voru 10 litlir THULE horfnir ofan í mig og hugurinn leitaði einhvert. Þá var afráðið að hendaist á litlabró sem var í einhverjum kojuskemmtara að hlusta á Justin Timberlake í rosa fíling að það meiraðsegja endaði í því að hann reyndi að selja mér hugmyndina að þetta áhlustunarefni væri þokkalega gott, en þar sem ég fann fyrir að hormónar hættu að framleiðast í líkamanum hjá mér og eyrun límdust saman bara svona óafspurð, þá held ég að ég verði að lemja einhverskonar karlmennsku í bróður minn svo að hann fái nú einhverntíman bringurhár.

En já svona til að halda áfram með leiðinlegustu fylleríssögu síðan 1493 (saga sem ég man ekkert eftir en hlýtur að vera slæm) þá ákváðum við að hringja á Taxi og hundskast nirrí bæ. júmm eftir 2 tilraunir þá áttaði leigurbílstjórinn sig á því að það er töluverður munur á FLÉTTurima og FÍFurima,baðst afsökunnar og  hleypti okkur inn. Við fórum niðrí bæ og höfðum prýðilegustu afsökun frá upphafi okkar tímatals til að þvælast niðrí bæ. Júmm einmitt fara hitta skólafélaga minn hann Sigurð Þór, sem var að skemmta sér svo ferlega mikið að allt djamm fyrir norðan Alpafjöll munu breytast hér með. En jæja við komumst niðrí bæ, þar fann ég fyrir svona óvenjulegum ónotakendum sem ég er ekki beint vanur og kvartaði sárann yfir matarleysi. Jú við skundum inná Hlölla, og í byrjun fyllerís..... Það vissi ekki á gott enda fórum við eftir matinn og hittum á Sigga sem fannst víst góð hugmynd að fara á Dubliners og þá held ég að sagan ætti varla að vera lengi því hvílíkur sora staður hef ég aldrei farið jafn edrú inná. Hvílíkur djöfulsins dómsdagsviðbjóður, ekki bara staðurinn sjálfur heldur líka fólkið inni, ég er nú ekki maður til að dæma svona almennt en það var eins og það hafi verið að halda uppá árangur íslenska landsliðsins í special olympics. Jiminn mér hefði bara alls ekki komið á óvar ef fólk færi að kasta vatni eða saur þarna bara í einhverju horninu... 

Þannig þetta endaði með því að við kvöddum Sigurð og héldum heim á leið, afskaplega leið yfir hálf misheppnuðu djammi en um leið ákaflega forvitnilegu frá mannfræðilegu sjónarmiði ... örugglega .. 

 

Bæjó

Tóti. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þórarinn Ásdísarson

Höfundur

Þórarinn Guðmundsson
Þórarinn Guðmundsson
Nemi

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...pano_632061
  • ..._1_by_iqeye
  • Photo 54
  • Photo 59
  • Speglu

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband