Jújú ekki seinna vænna en að byrja aftur að henda frá sér einhverju mishugsuðu...

Hey já ég er greinilega ekki þessi gríðarlega bloggtýpa, ætlaði að fara hamförum og hafa skoðanir á hinum og þessum málefnum sem mogginn sýnir mér á hverjum degi en....

Það er ekki eins og það er búin að vera einhver gúrkutíð í fjölmiðlum, það er bara eins og ég sleppi því að æla útúr mér skoðunum, er farinn að hallast að því að ég get verið svona ógurlega hlutlaus að ég læt mig þessa hluta lítið eða bara alls ekki varða.

Hinsvegar er ég búinn að prófa vera skoða hin og þessi blogg hérna á moggablogginu og oft á tíðum finnst mér málefnaleg umræða og/eða spekúleringar bakvið fréttirnar alveg horfnar. Það sem ég er búinn að vera vitni af er, kynþáttahatur, karlrembur, kvenremba, fáfræði, athyglissýki og þröngsýni. En þetta er víst allt í auga sjáandans, og mitt segir mér að ég ætti kannski að hafa fleiri skoðanir og/eða fara einbeita mér af þokkalega vel upplýstu bloggi. En þar sem ég vil venjulega kalla mig svona hálfgerðan gaur, þá finn ég mér örugglega eitthvað annað að gera þegar þessi fyrirlestur sem ég er í lögfræði verður búinn...

 Well well toodles

 

 

Tóti Tossi 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

T

Júlíus Freyr Theodórsson (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 11:31

2 Smámynd: Þórarinn Guðmundsson

Já ég get ekki verið annað en sammála, T er einstaklega góður stafur og er fyllilega nógu góður einn og sér frekar en mörg komment á síðuna. Get ekki annað en fyllst stolti af því hvernig efra strikið fer yfir lóðréttu línuna a sem er hinn helmingurinn af stafnum, það bindur allt svo mikið og vel saman að það gerir stafnum af því sem við þekkjum í dag.

Bara enn og aftur þakka gott komment 

Þórarinn Guðmundsson, 24.1.2008 kl. 14:03

3 identicon

ég get ekki sagt annað en A, við þessari snilld, brattar hliðarnar miðjuð þverstýfan, dásamlegt.

Reyndar átti að standa einhver hellingur þarna gríðarlega gáfulegur en eitthvað fór úrskeiðis....

Júlíus Freyr Theodórsson (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 08:53

4 Smámynd: Birna Dís

Þú ætlar ekki að verða mikið skárri bloggari en ég En kommentin þín eru allavega skemmtilegri

Birna Dís , 4.2.2008 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þórarinn Ásdísarson

Höfundur

Þórarinn Guðmundsson
Þórarinn Guðmundsson
Nemi

Bloggvinir

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...pano_632061
  • ..._1_by_iqeye
  • Photo 54
  • Photo 59
  • Speglu

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband